Alvarlegar rakaskemmdir eru á hluta skrifstofuhúsnæðis Orkuveitu Reykjavíkur (OR) við Bæjarháls. Samkvæmt tilkynningu OR til Kauphallarinnar gera fyrstu áætlanir ráð fyrir að kostnaður við úrbætur verði minnst 1.740 milljónir króna.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að engin ákvörðun liggi fyrir um aðgerðir. Fyrirtækið mun óska eftir dómkvöddum matsmanni til að meta tjónið og ástæður þess. Á grundvelli matsins mun OR meta lagalega stöðu sína og verja hagsmuni fyrirtækisins.