Útgáfu á niðurstöðum um landsframleiðslu á 1. ársfjórðungi 2015, sem koma átti út á morgun 5. júní, hefur verið frestað til þriðjudagsins 9. júní. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Þar segir að ástæðan sé verkfall starfsmanna hjá Fjársýslu ríkisins. Tafir hafi orðið á niðurstöðum um fjárhag ríkissjóðs vegna þess.