Taívönsk fjármálafyrirtæki eiga íslensk ríkisskuldabréf og skuldabréf íslensku viðskiptabankanna að andvirði 6 milljarða Bandaríkjadala.

Þetta kemur fram í frétt Economic Daily News og er vitnað til fjármálaeftirlitsins Taívan.

Fram kemur í fréttinni að búið er að afskrifa fjórðung þessarar upphæðar.