Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn  hefur  samið við Opin kerfi um kaup á tveimur nýjum háhraða diskastæðum til að hýsa afrit af öllu íslensku efni á internetinu. Önnur diskastæðan verður hýst í fullkomnu gagnaveri Opinna kerfa sem staðsett er í Verne, Reykjanesbæ. Landsbókasafn safnar öllu íslensku vefefni og geymir í varanlegri geymslu til framtíðar. Jafnframt hýsir Opin kerfi afrit af stafrænum  endurgerðum af efni safnsins, s.s. timarit.is og handrit.is.

„Við skoðuðum markaðinn með það fyrir augum að finna rétta lausn og góðan þjónustuaðila. Lausnin sem Opin kerfi kynntu fyrir okkur stóðst okkar kröfur og jafnvel gott betur en það. Við val okkur lögðum við mikla áherslu á öryggismál og að einfalda högun á okkar umhverfi og sú lausn sem Opin kerfi bauð okkur kom best út,“ segir Edda G. Björgvinsdóttir fjármálastjóri og sviðsstjóri rekstrar hjá Landsbókasafni, í tilkynningu frá Opnum kerfum.

Davíð Þór Kristjánsson forstöðumaður lausnasölu hjá Opnum kerfum kveðst vera ánægður með að fá að taka þátt í því með Landsbókasafni að varðveita íslenskt vefefni. Opin kerfi hlakki til samstarfsins.