Forsvarsmenn Íslandshótela tóku þá ákvörðun nú eftir hádegi í dag að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum.

Hótelkeðjan segist hafa tekið þessa ákvörðun eftir að verkfallsverðir fóru að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem ekki séu í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum.

„Íslandshótel hafa sýnt kröfum Eflingar um verkfallsvörslu skilning, jafnvel þó lög kveði ekki á um slíkt, og samþykktu að tveir aðilar frá félaginu gætu sinnt verki sínu og fengju aðgang til eftirlits. Efling svaraði til með því að krefjast þess að stór hópur Eflingarfélaga ættu að fá fullan aðgang að hótelunum, en slíku var hafnað með hliðsjón af því að gestir hótelanna ættu skilið ró og næði, jafnvel þó verkfall væri í gangi.“

Íslandshótel segir í tilkynningu að ákvörðunin verði endurskoðuð ef breyting verði á afstöðu Eflingar um eðlilega og sanngjarna verkfallsvörslu. Munu þá tveir fulltrúar félagsins fá aðgang að hótelunum.