Primera Air hefur gengið frá samningum um að taka í notkun 8 nýjar Airbus 321 NEO flugvélar og verða þær afhentar á árinu 2018. Flugvélarnar eru af nýrri kynslóð Airbus véla sem hafa lengri flugdrægni en flugvélar hafa áður haft og mun gera Primera Air kleift að opna nýjar flugleiðir milli Evrópu og Bandaríkjanna sem áður hefur aðeins verið mögulegt með breiðþotum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Flugfélagið verður jafnframt það fyrsta í heiminum til að taka í notkun Airbus 321LR flugvélar, en hún verður langdrægnasta vél sinnar tegundar í heiminum með yfir 4.000 mílna flugþol. Samningurinn verður undirritaður á flugsýningunni í París í dag og er gerður við AirCap, annað stærsta flugvélaleigufyrirtæki heims.

„Við erum afskaplega stolt af þessum samningi og að endurnýja vel heppnað samstarf okkar við AerCap. Hin nýja Airbux 321LR breytir öllu á þessum markaði og Primera Air verður fyrsta flugfélagið til að fá þessa vélartegund og gerir okkur kleift að geta flogið milli Evrópu og Ameríku með hagkvæmari hætti en áður hefur verið hægt. Þessar nýju vélar eru í raun stærsta skref sem stigið hefur verið á þessum markaði í yfir tvo áratugi,“ segir Andri Már Ingólfsson, eigandi Primera Air. Fyrsta Airbusvél Primera Air verður afhent í mars 2018 en nýtt leiðarkerfi Primera Air verður kynnt á næstu vikum.