Nú liggur fyrir að Icelandair muni taka tvær Boeing 737 MAX vélar í rekstur á ný í mars. Gert er ráð fyrir að TF-ICN sem ber nafnið Mývatn verði nýtt í áætlunarflugi til Kaupmannahafnar mánudaginn 8. mars næstkomandi, samkvæmt fréttatilkynningu.

Félagið gerir þannig ráð fyrir að nýta allar flugvélategundir sínar í áætlunar- og fraktflugi framvegis, þ.e. Boeing 737 MAX, Boeing 757 og Boeing 767. Fyrst um sinn verða MAX vélarnar einungis tvær en gert er ráð fyrir að TF-ICO eða Búlandstindur fari einnig í loftið fljótlega. Vélunum tveimur var nýlega flogið hingað til lands eftir að hafa verið í geymslu á Spáni.

Flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu og víðar hafa nú aflétt kyrrsetningu vélanna eftir yfirgripsmikið endursamþykktarferli sem stóð yfir í á annað ár. Að því komu flugmálayfirvöld um allan heim, sérfræðingar frá Boeing og fjölmörgum flugfélögum, sem og óháðir sérfræðingar, svo sem frá NASA og bandaríska flughernum. Gerðar hafa verið uppfærslur á vélunum sem tryggja öryggi þeirra, auk þess sem auknar kröfur eru gerðar til þjálfunar flugmanna.

Mörg flugfélög hafa þegar tekið MAX vélarnar í notkun og hafa flogið hátt í átta þúsund flug í áætlunarflugi síðan kyrrsetningu þeirra var aflétt. Flugfélög vestanhafs tóku vélarnar í notkun í lok síðasta árs en evrópsk flugfélög um miðjan febrúar á þessu ári.

Á liðnum vikum hefur verið unnið að undirbúningi hjá Icelandair fyrir endurkomu vélanna í flota félagsins. Flugvirkjar Icelandair vinna nú að uppfærslu vélanna í samræmi við kröfur flugmálayfirvalda. Þá stendur þjálfun flugmanna yfir í þjálfunarsetri félagsins í Hafnarfirði. Þjálfunin er bæði bókleg og í flughermi en Icelandair er eitt fárra flugfélaga í heiminum sem býr svo vel að eiga sérstakan Boeing 737 MAX flughermi. Að þessu loknu fara vélarnar í reynsluflug án farþega áður en þær verða formlega teknar í rekstur.

„Það er ánægjulegt að komið sé að því að taka 737 MAX vélarnar í notkun á ný. Okkar færustu sérfræðingar, flugvirkjar og flugmenn, leggja nú lokahönd á undirbúning fyrir áætlunarflug. Engin flugvélategund í sögunni hefur farið í gegnum jafn ítarlegt rannsóknar- og umbótaferli og við munum leggja okkur fram við að upplýsa farþega um öryggi vélanna. Ég bind miklar vonir við MAX vélarnar – þær eru hagkvæmari og umhverfisvænni kostur og koma til með að efla leiðakerfi Icelandair, viðskiptavinum okkar til hagsbóta,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

Í tilkynningunni segir að félagið leggi áherslu á góða upplýsingagjöf til viðskiptavina og gagnsæi og kemur gerð vélar sem flogið er með skýrt fram í bókunarferlinu fyrir hvert flug. Þeir sem þegar eiga bókun geta fundið þessar upplýsingar undir „Ferðin mín“ á vefsíðu félagsins. Icelandair mun sýna þeim farþegum skilning sem kjósa að ferðast með öðrum vélum fyrst um sinn með sveigjanlegum bókunarskilmálum sem verða í boði tímabundið. Hægt er að gera breytingar á bókun án auka kostnaðar séu viðkomandi skilmálar uppfylltir eða fá ferðainneign. Nánari upplýsingar um Boeing 737 MAX vélarnar og það ferli sem hefur átt sér stað á liðnum mánuðum má finna á sérstakri upplýsingasíðu Icelandair um MAX vélarnar.