Heineken NV og Patron Capital hafa nú fjárfest í Punch Taverns Plc., félagi sem rekur bari víðs vegar um Bretland. Samkvæmt heimildum Bloomberg voru greidd 402,7 milljón pund fyrir félagið, sem nemur rúmlega 57 milljörðum íslenskra króna.

Patron munu greiða 180 pence fyrir hvern hlut með reiðufé, en Heineken mun greiða Patron 305 milljónir til að sjá um viðskiptin fyrir sig. Punch Taverns rekur um 1.900 bari, en þrír stærstu hluthafar félagsins voru staðráðnir í því að samþykkja tilboð Heineken og Patron Capital.

Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs sá um ráðgjöf til Punch Taverns, Nomura International veittu Heineken ráðgjöf og Rosthschild þjónustuðu Patron Capital.