Í minnisblaði Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) til ferðamálaráðherra kemur fram að harðari takmarkanir hér en í öðrum Evrópulöndum gætu skilað þjóðinni um 70 til 140 milljörðum króna lægri útflutningstekjum árið 2022.

Byggja útreikningar SAF meðal annars á upplýsingum Isavia um að nýting evrópskra flugfélaga sé 15-20% lægri á áfangastöðum með landamæratakmarkanir, að 700 þúsund ferðamenn komi til landsins í stað einnar milljónar og að tekjur af hverjum þeirra nemi annað hvort 200 þúsund krónum líkt og meðaltekjur af ferðamönnum voru árið 2019 eða 400 þúsund krónum, líkt og þær voru fyrstu sex mánuði ársins 2021.

Í minnisblaðinu er bent á að sala ferða til Íslanfs taki að jafnaði 8 til 12 mánuði hverju sinni, enda bóki ferðaskrifstofur 8 til 12 mánuðum fyrir brottför og ferðamenn á eiginvegum 0 til 8 mánuðum fyrir brottför. Þannig ráðist framboð flugsæta yfir sumarið 2022 að miklu leyti að því hversu mikil eftirspurnin er hjá þessum hópum á næstu tveimur til fjórum mánuðum.

Þar er jafnframt bent á að búist sé við að loðnuvertíð 2021-2022, sú stærsta í 20 ár og sem réttilega hafi verið fangað mjög, muni geta skilað þjóðarbúinu um 50 milljörðum í útflutningstekjur.

Töpuðu Jet2 sætin væru 6,5 milljarða virði

Viðskiptablaðið sagði frá því í síðustu viku að breska flugfélagið Jet2 hefði hætt við að fljúga til Íslands næsta sumar vegna þess að harðari takmarkanir hér á landi hefðu neikvæð áhrif á bókunarstöðu.

Með því hurfu 25 þúsund flugsæti úr framboði næsta sumars, sem hefðu samkvæmt útreikningum SAF getað skilað þjóðarbúinu 6,5 milljörðum í útflutningstekjur, miðað við meðalneyslu ferðamanna á Íslandi í sumar.