Tal færir nú öll heildsöluviðskipti sín til Símans í kjölfar þess að fyrirtækin undirrituðu samninga sem ná til allrar fjarskiptaþjónustu Tals. Tal hefur hingað til átt heildsöluviðskipti við bæði Símann og Vodafone.

Í tilkynningu frá Tali er haft eftir Viktori Ólasyni, forstjóra Tals, að með samningnum geti Tal boðið bæði lægra verð og betri þjónustu.

„3G dreifikerfi Símans er það stærsta á Íslandi og við heyrum það á okkar viðskiptavinum að þeir eru ánægðir með betra samband,“ segir Viktor og bætir við: „Það einfaldar allan okkar rekstur og gerir hann bæði stöðugri og hagkvæmari að eiga viðskipti við einn birgi í stað tveggja áður. Þá skiptir það miklu máli að Síminn er að veita okkur frábæra þjónustu.”

Tal hefur á liðnum misserum fært langflesta GSM-viðskiptavini sína sem hafa verið á kerfi Vodafone yfir á símstöð Tals þaðan sem viðskiptavinir Tals fá aðgang að kerfum Símans. Með samningunum nú mun Tal notast við innviði Símans fyrir alla sína fjarskiptaþjónustu; farsíma, heimasíma, internet og sjónvarp.