Samskip tekur umfjöllun um illa meðferð á vörubílstjórum undirverktaka fyrirtækisins í Hollandi alvarlega. „Við tökum þessa umfjöllun alvarlega og höfum þegar haft frumvkæði að rannsaka þær ásakanir sem beinast gegn undivertaka okkar,“ segir Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa á Íslandi, um fréttaflutning og boðuð kærumál í Hollandi.

Í fréttatilkynningu segir að Samskip leggja áherslu á góðan aðbúnað starfsmanna og því komi umfjöllunin í Hollandi félaginu mjög á óvart, en hún virðist beinast að undirverktaka Samskipa.

„Það er alveg klárt að Samskip skorast ekki undan ábyrgð og þegar við ráðum undirverktaka þá krefjumst við upplýsinga til staðfestingar á að farið sé eftir lögum og reglum. Ef menn  brjóta lög þá eru þeir líka að brjóta samningana við okkur og þá er samningunum sagt upp,“ er enn fremur haft eftir Pálmari Óla. „Það er skylda okkar að fara eftir lögum og reglum sem við gerum í hvívetna. Við leggjum enn fremur metnað okkar í jöfn tækifæri starfsmanna og góðan aðbúnað þeirra.“

„Samskip leggja sig fram um að eiga gott samstarf við eftirlitsstofnanir á borð við hollenska Umhverfis- og samgöngueftirlitið (ILENT) enda hefur félagið hagsmuni af því til að hlíta þeirra tilmælum til að tryggja starfsemi félagsins sem best og þjónustu þess við viðskiptavini,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.