Hlutabréfamarkaðir lækkuðu talsvert í Evrópu í dag og hafa að sögn Retuers fréttastofunnar ekki verið lægri í tæp 3 ár en það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki auk bílaframleiðanda sem leiddu lækkanir dagsins eftir að greiningadeild Goldman Sachs spáði frekari afskriftum stórra fjármálafyrirtækja.
FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði um 2,5% og hefur að sögn Reuters ekki verið lægri frá því í október 2005. Þá er þetta jafnframt mesta lækkunin á einum degi frá því í byrjun mars.
Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 2,6%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 3,1% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 2,4%.
Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 2,4% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 1,9%.
Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,4%, í Osló lækkaði OBX vísitalan um 1,5% og í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 3%.
Eins og fyrr segir voru það bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins. Sem dæmi má nefna að Barclays lækkaði um 5,7%, Credit Suisse um 4%, Deutsche Bank um 3,3%, RBS um 4% og UBS um 4,7%.
Bílar og dekk renna niður brekkuna
Bílaframleiðslufyrirtæki lækkuðu einnig nokkuð í dag eftir að þýskir fjölmiðlar greindu frá orðrómi um að Chrysler verksmiðjan muni á næstunni fara fram á greiðslustöðvun og jafnvel gjaldþrotabeiðni. Talsmenn Chrysler neituðu þessu í dag.
En BMW lækkaði um 4,2%, Renault um 5,7% og Daimler um 3,3%.
Þá lækkuðu dekkjaframleiðendur nokkuð í kjölfar bílaframleiðandanna en Michelin lækkaði um 6,5% og Continental um 4,7%.