Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 13% á milli ára í febrúar en þær voru 160.400 í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Gistinætur erlendra gesta voru 84% af heildarfjölda gistinátta en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra.

Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 1% á milli ára.