Gengi hlutabréfa HB Granda hækkaði um 2,96% í Kauphöllinni í dag. Talsverð viðskipti voru með hlutabréfin eða upp á 179 milljónir króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 2,07% í 199 milljóna króna veltu. Þetta var mesta veltan með hlutabréf á markaðnum í dag og mesta gengishækkunin.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa VÍS um 1,97%, N1 um 1,2% og Haga um 1%. Þá hækkaði gengi bréfa Regins um 0,93%, Eimskips um 0,86%, Icelandair Group um 0,56%, Vodafone um 0,48% og Össurar um 0,36%.

Gengi bréfa TM lækkaði hins vegar um 0,19% og Sjóvár um 0,08%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,06% og endaði hún í 1.183,8 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam tæpum 848 milljónum króna.