Hlutabréf flugvélaframleiðandans Boeing hafa lækkað talsvert á Wall Street í kjölfar elds sem kom upp í 787 Dreamliner þotu frá framleiðandanum á Heathrow í dag.
Öllum flugbrautum á Heathrow flugvelli á Englandi lokað vegna eldsins uppúr fjögur seinnipartinn en hann kom upp í flugvél Ethiopian Airlines. Enginn var um borð í vélinni
Hlutabréf félagsins lækkuðu mest um 6% en nú nemur lækkunin tæplega 4%.