Talsverð viðbrögð hafa verið á skuldabréfamarkaði nú í morgun við áætluninni um afnám hafta sem birt var eftir lokun markaða síðastliðinn föstudag. Hefur verið töluverður kaupþrýstingur verið nú í morgunsárið á lengri óverðtryggð bréf og veltan verið mikil.

Klukkan 12:55 í dag nam hækkun verðtryggðra bréfa um 0,2% samkvæmt vísitölu GAMMA og óverðtryggðra 1,1%. Það sem af er degi nemur heildarvelta um 17,2 milljörðum að markaðsvirði.

Greining Íslandsbanka fjallar um viðbrögðin í Morgunkorni í dag. Þar segir (ritað klukkan 11:30):

„Nemur kröfulækkun þriggja lengstu óverðtryggðu flokkanna nú um 22-24 punktum frá opnun markaða og liggur krafa þeirra nú á bilinu 6,23%-6,98%. Auk þess hefur krafa RIKB16 lækkað töluvert þar sem af er morgni, eða um 18 punkta, og stendur hún nú í 5,07%. Á hinn bóginn hefur krafan hækkað nokkuð á styttri óverðtryggðu flokkunum á sama tíma. Þannig hefur krafa RIKB11 hækkað um 22 punkta og krafa RIKB12 hækkað um 14 punkta. Krafa verðtryggða hluta markaðarins stendur hins vegar lítið breytt frá lokun markaðar á föstudag og hefur verðbólguálagið þar með þokast nokkuð niður á við, sér í lagi til lengri tíma.

Athygli vekur að Seðlabankinn tilkynnti í morgun um að Lánamál ríkisins myndu fylgjast náið með þróun skuldabréfamarkaðar í dag og vera reiðubúin að bregðast við sviptingum á honum með kaupum og/eða sölu á ríkisbréfum. Þessi tilkynning hefur væntanlega átt sinn þátt í að verðsveiflur á markaðinum urðu minni en ella hefði orðið, þar sem tilkynningar föstudagsins höfðu líklega talsverð áhrif á væntingar um bæði framboð og eftirspurn ríkistryggðra bréfa næsta kastið.“