Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 2,04% í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta hækkun dagsins á hlutabréfamarkaði hér á landi. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,84% og Eimskips um 0,37%.

Á hinn bóginn féll gengi hlutabréfa Icelandair Group um 2,37%. gengi bréfa VÍS lækkaði um 1,96% og TM um 1,31. Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 1,23% og fasteignafélagsins Regins um 0,75%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,19% og endaði hún í rúmum 1.184 stigum í lok dags.