Félagið Laundromat Reykjavík sem rekur samnefndan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur tapaði tæplega þremur milljónum króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er þó betri rekstrarniðurstaða en árið 2011 þegar félagið tapaði 8,7 milljónum króna.

Eigið fé Laundromat Reykjavík var í lok síðasta árs neikvætt um 12,2 milljónir króna.

Einn hluthafi er í félaginu en það er félagið Sverðfiskur ehf. sem er í 100% eigu Ásgeirs Johansen. Sverðfiskur var rekið með hagnaði upp á 1,3 milljónir á síðasta ári en eigið fé var neikvætt um 24,3 milljónir í lok árs 2012.