Kjúklingastaðurinn Suðurveri var rekinn með um 2,7 milljóna króna tapi á árinu 2012 samkvæmt ársreikningi félagsins.

Tekjur staðarins á síðasta ári námu rúmum 125 milljónum króna. Eignir Kjúklingastaðarins Suðurveri nema um 21 milljón en skuldir félagsins tæplega 41 milljón króna. Eigið fé félagsins er því neikvætt um 19,5 milljónir.