Norræna lágfargjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, skilaði tapi uppá 41,1 milljón danskra króna á fyrsta fjórðungi ársins. Í frétt félagsins segir að ekki komi á óvart að tap sé á rekstrinum, vanalega sé tap á fyrsta ársfjórðungi vegna árstíðarseiflna.
Farþegum Sterling á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 82 þúsund miðað við sama tímabil á síðasta ári og flutti félagið nú 388 þúsund farþega. Í frétt á vef Börsen segir að félagið hafi náð 26,8% aukningu farþega með meiri sölu á netinu og stærri flugflota. Sætanýtinga félagsins var 81,2% á fjórðungnum samanborið við 75,1% á sama fjórðungi síðasta árs.
Rekstrartekjur námu um 335 milljónum danskra króna og jukust þær um 66,5 milljónir á milli tímabila.
Sterling skýrir taprekstur fjórðungsins með háu eldsneytisverði en jafnframt er fyrsti ársfjórðungur jafnan erfiður í rekstri flestra flugfélaga. Afkoman nú er mun betri en á sama tíma í fyrra þegar tapið nam tæplega 60 milljónum danskra króna.
Byggt á Hálffimm fréttum KB banka.