Tap Icelandair [ ICEAIR ] var 1,7 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi en félagið tapaði 1,2 milljörðum króna á sama  tíma  í fyrra.

Vegna árstíðasveiflu í flugi og ferðaþjónustu er afkoma jafnan neikvæð á fyrsta ársfjórðungi og nú var EBITDA neikvæð um 857 milljónir króna.

Heildarvelta félagsins var 14 milljarðar króna og jókst um 18% frá sama tíma í fyrra.

„Rekstur Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi er nokkru betri en við gerðum ráð fyrir, í mun erfiðara árferði en á síðasta ár," sagði Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu.