Afkoma Isavia samstæðunnar á síðasta ári var neikvæð um 13,2 milljarða króna eftir skatta, sem er um 14,4 milljarða króna viðsnúningur frá fyrra ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Isavia samstæðunnar sem samþykktur var á aðalfundi félagsins sem haldinn var með rafrænum hætti í dag.

Tekjur ársins námu 14,7 milljörðum króna, sem er um 62% samdráttur á milli ára. Staða handbærs fjár nam um 9,4 milljörðum króna í árslok 2020. Rekstrartap Isavia nam ríflega tíu milljörðum króna en þar af voru afskriftir 3,9 milljarðar króna.

Stærstan hluta af tekjusamdrætti samstæðunnar milli ára má rekja til reksturs Keflavíkurflugvallar og Fríhafnarinnar en farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 81% frá 2019.

Eignir samstæðunnar námu 80,5 milljörðum króna í árslok 2020 og lækkuðu um 166 milljónir milli ára. Eigið fé lækkaði úr 36,5 milljörðum króna í 27,3 milljarða milli ára. Skuldir Isavia námu 53,2 milljörðum króna og jukust um 9 milljarða milli ára. Eigið fé var því 33,9% í lok síðasta árs, samanborið við 45,2% árið áður.

Ríkissjóður jók hlutafé í Isavia um 4 milljarða króna í júní síðastliðnum. Í byrjun árs 2021 var síðan samþykkt að hlutaféð yrði aukið um 15 milljarða til viðbótar til að styðja við rekstur þess í kjölfar faraldursins.

Laun og annar starfsmannakostnaður lækkaði um 18,8%, úr rúmum 18 milljörðum króna árið 2019 í 14,7 milljarða á síðasta ári. Meðalfjöldi starfa árið 2020 var 1.081 talsins, samanborið við 1.360 árið áður. Heildarlaun og mótframlag í lífeyrissjóð til forstjóra Isavia námu 41,6 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 39,2 milljónir árið áður en forstjóraskipti voru hjá Isavia um mitt ár 2019.

„Árið 2020 var afar krefjandi fyrir rekstur flugvalla og flugleiðsögu í öllum heiminum. Heimsfaraldurinn af völdum Covid-19 tók í raun völdin í öllum okkar daglegu athöfnum og fór Isavia síður en svo varhluta af því. Á síðasta ári fór mikil orka í að tryggja fjármögnun og aðgang okkar að lausu fé ásamt því að standa vörð um sterka innviði félagsins,“ er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni , forstjóra Isavia, í fréttatilkynningu.

„Í dag höfum við snúið vörn í sókn. Okkur hefur tekist vel við að tryggja aðgang að lausu fé og þrátt fyrir að hafa þurft að taka erfiðar ákvarðanir á síðasta ári um fækkun starfsfólks þá gátum við engu að síður staðið vörð um stærri hluta starfa hjá okkur. Fjármálaráðherra, fyrir hönd eiganda okkar, tók ákvörðun í byrjun þessa árs að auka hlutafé í félaginu sem gerði okkur kleift að fara með uppbyggingaáform Keflavíkurflugvallar af stað á ný. Sú ákvörðun var afar mikilvæg, bæði fyrir samkeppnishæfni flugvallarins til framtíðar og möguleika okkar að komast út úr Covid-19, miðað við mismunandi sviðsmyndir en ekki síst fyrir erfitt atvinnuástand í nærsveitarfélögum Keflavíkurflugvallar.“

„Nýjustu aðgerðir stjórnvalda vegna aukinna Covid-19 smita hér á landi sýna að við höfum ekki kveðið niður ógnina af veirunni. Það er engu að síður lykilatriði að missa ekki sjónar á því markmiði að opna Ísland þegar tækifærið gefst. Bólusetningar á tveimur af okkar mikilvægustu mörkuðum, Bretlandi og Bandaríkjunum, ganga vel og stjórnvöld á Íslandi hafa boðað afar mikilvæg skref í átt að opnun Íslands. Auðvitað þurfum við að taka mið af stöðu faraldursins hverju sinni en við finnum fyrir miklum áhuga hjá flugfélögum sem við þjónum á þeim skrefum sem hafa verið rædd vegna umferðar til Íslands og munum að sjálfsögðu gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að endurheimtin verði sem farsælust,” segir Sveinbjörn.