5,8 milljóna króna tap var á rekstri félagsins Kotasæla ehf. sem er alfarið í eigu fjárfestisins Skúla Mogensen. Skúli á einnig stóran hlut í MP Banka og er eigandi Wow air.
Kotasæla ehf. heldur utan um jarðirnar Hvamm og Hvammsvík sem keyptar voru af Orkuveitu Reykjavíkur eftir útboð árið 2011.
Eigið fé Kotasælu ehf. var neikvætt um 5,4 milljónir í lok árs 2012 en eignir þess nema um 193 milljónum króna samkvæmt ársreikningi ársins 2012. Samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitunni fengust 155 milljónir króna fyrir eignirnar þegar þær voru seldar en Orkuveitan heldur jarðhitaréttindum á svæðinu. Jarðirnar eru um 607 hektarar samkvæmt útboðslýsingu Orkuveitunnar en þar er meðal annars rekin ferðaþjónusta með tjaldstæði, silungsveiði og 9 holu golfvelli.