Mikill viðsnúningur varð til hins verra á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu þremur mánuðum ársins. Tap var upp á 2.987 milljónir króna samanborið við 1.978 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður.

Í frétt frá Orkuveitunni kemur fram að rekstrartekjur fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi hafi numið um 4.393 milljónum króna en voru um 3.965 milljónir á fyrsta ársfjórðungi 2005.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, var 2.140 milljónir króna samanborið við 1.793 milljónir króna á sama tímabili 2005. Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna voru 1.039 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2006 en 778 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2005.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 4.605 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins 2006, en voru jákvæðir um 969 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Heildareignir 31. mars 2006 voru 115.907 milljónir króna en voru 88.039 milljónir króna 31. mars 2005.

Eigið fé 31. mars 2006 var 59.791 milljón króna en var 48.298 milljónir í lok mars 2005.

Heildarskuldir 31. mars 2006 voru 56.115 milljónir króna en voru 39.741 milljón krónur 31. mars 2005.

Eiginfjárhlutfall var 51,5% í lok mars 2006 en var 54,8% á sama tíma árið áður.

Orkuveita Reykjavíkur hefur verð undanþegin tekjuskatti en með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja verður fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006.

Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2006. Umsvif fara verulega vaxandi og fjárfestingar eru mjög miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins. Í ársbyrjun yfirtók Orkuveitan fráveitur eigenda Orkuveitunnar.