Rarik ohf. kynnti á dögunum afkomutölur sínar, en rekstrartekjur félagsins voru 7.436 milljónir króna á árinu 2007. Tap félagsins á árinu var 191 milljón króna en tap Rarik ohf. Samkvæmt efnahagsreikningi í lok árs 2007 námu heildareignir félagsins 26.442 milljónum króna. Heildarskuldir voru 11.706 milljónir og eigið fé 14.737 milljónir, en eiginfjárhlutfall er 55,7% í árslok 2007.

Rarik var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við störfum Rafmagnsveitna ríkisins. Frá því að félagið var stofnað og til ársloka 2006 var tap þess 381 milljón króna.

Aðalfundur Rarik verður haldinn á morgun í Alþýðuhúsinu á Akureyri og hefst kl. 13:00.