Tap á rekstri útgáfufélagsins Árvakurs hf, sem gefur út Morgunblaðið, nam 50 milljónum króna árið 2016 og batnar afkoman því frá árinu áður þar sem tapið nam 164 milljónum króna. Hlutfé félagsins var aukið um 200 milljónir króna á tímabilinu. Frá þessu er greint á vef mbl í dag.
Tekjurnar félagsins jukust um 9% og námu um 3,6 milljörðum króna. Á sama tíma jukust gjöldin um 6%. EBITDA félagsins batnaði jafnframt og nam 99 milljónum króna. Eignir Árvakurs námu 2.079 milljónum króna um síðustu áramót og eiginfjárhlutfall var 39%.
Í frétt um uppgjörið segir Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs, að árið 2016 hafi í meginatriðum verið gott ár fyrir Árvakur þó að ekki tækist að skila rekstrinum réttum megin við núllið. Segir hann árið hafa einkenndist af batnandi rekstri en miklar launahækkanir, ekki síst umsamdar launahækkanir á vinnumarkaði fyrstu mánuði ársins sem komu óvænt inn, skýri þann halla sem varð á rekstri Árvakurs.
Viðskiptablaðið greindi m.a. frá því í apríl sl. að Eyþór Arnalds hefði eignast ríflega fjórðungshlut í félaginu Þórsmörk ehf., sem er eignarhaldsfélag Árvakur. Samherji átti 18,43% hlut í félaginu í gegnum félagið Kattarnef ehf. en við sölu á öllum hlut félagsins til Eyþórs Arnalds fór Samherji úr eigendahópnum.