Tap U.S. Airways Group á 2. ársfjórðungi nam 567 milljónum Bandaríkjadala, eða 6,16 dölum á hlut. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður félagsins 263 milljónir dala, 2,77 dalir á hlut.

Það sem veldur þessum umskiptum er mikil hækkun olíuverðs auk þess sem nokkrar afskriftir á viðskiptavild áttu sér stað á fjórðungnum.

Þetta kemur fram í frétt Reuters.