TBH Investments Limited hefur selt í FL Group fyrir um 2,4 milljarða króna.

Paul Davidson, stjórnarmaður í FL Group, er stjórnarmaður í TBH Investments Limited, sem er í 100% eigu West Coast Capital þar sem Paul Davidson er hluthafi.

Vegna mistaka var tilkynning ekki verið send fyrr til Kauphallarinnar en viðskiptin fóru fram 1. júní, að því er fram kemur í flöggun.

Um er að ræða 55.462.601 hluti, keypta á genginu 29,09.