Íranski athafnamaðurinn Robert Tchenguiz vinnur nú að formlegu kauptilboði í bresku pöbbakeðjuna Mitchells & Butlers, samkvæmt heimildum breska dagblaðsins The Times. Kauptilboðið mun hljóða upp á 4,6 milljarða punda að skuldum meðtöldum, sem samsvarar 648 milljörðum íslenskra króna.
Blaðið segir að Tchenquiz muni skila inn formlegu tilboði í lok næstu viku en fjárfestingabankinn Goldman Sachs hætti óvænt við að taka þátt í að fjármagna kaupin og veita ráðgjöf í síðustu viku.
Tchenguiz er einn af helstu viðskiptavinum Kaupþings banka í Bretlandi og samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins stóð til að Kaupþing banki myndi taka þátt í fjármögnuninni og ef til vill taka stöðu í fyrirtækinu.
Heimildarmenn The Times segja að Bank of Scotland, fjárfestingasjóðurinn Apax Parnters og Barclays Capital, fjárfestingaarmur Barclays-bankans, hafi samþykkt að taka þátt í kaupnum eftir að skyndilegt brotthvarf Goldman Sachs. Blaðið segir fjárfestahópinn eiga í viðræðum við Deutsche Bank, Lehman Brothers, Merrill Lynch og Morgan Stanley um að fjármagna kaupin.
Ekki er minnst á Kaupþing banka í frétt The Times, en bankinn hefur fundið verulega fyrir ólgu á íslenskum fjármálamarkaði ? gengi hlutabréfa bankans hefur tekið dýfu síðustu vikur og bandarískir fjárfestar hafa ákveðið að framlengja ekki skuldabréf sem bankinn seldi í Bandaríkjunum ? og velta fjármálasérfræðingar því fyrir sér hvort að lítið muni fara fyrir bankanum á næstum misserum.
Sérfræðingar búast við að Tchenguiz ætli sér að sameina félagið Globe Pub Company, sem er í hans eigu.
Kaupþing studdi kaup Tchenguiz og fleiri fjárfesta á bresku matvöruverslunarkeðjunni Somerfield og talið er að bankinn eigi um 20% hlut í félaginu. Einnig tók Kaupþing þátt í kaupum Tchenguiz á bresku pöbbakeðjunni Laurel Pub Compnay.