Á undanförnum vikum hefur hluthöfum í Mjólkurfélagi Reykjavíkur (MR) borist tilboð um kaup á hlut þeirra í félaginu. Í fyrstu var bændum boðið gengið 1,0 af einkahlutafélaginu Geri ehf. en það félag er m.a. er í eigu núverandi framkvæmdastjóra MR, Þóris Haraldssonar. Geri ehf. á í dag rétt um 60% hlutafjár í MR, en bókfært stofnfé MR er kr. 161 milljón. Nú hefur Sláturfélag Suðurlands (SS) slegist í baráttuna um félagið og hefur boðið bændum að kaupa hluti þeirra í MR á genginu 1,3.

Ástæður kaupa SS í MR eru líklega að félagið vill gera sig gildandi á fóðurvörumarkaði en eins og kunnugt er varð af samruna Fóðurblöndunnar og fleiri fyrirtækja í nýliðnum mánuði og líklegt er að SS hafi hug á að skapa ákveðið mótvægi við Fóðurblönduna og Áburðarverksmiðjuna, en SS er jafnframt með áburðarinnflutning á sínum snærum. Bændur fylgjast sem eðlilegt með málinu af miklum áhuga og byggir hér á frétt á heimasíðu Landssambands kúabænda.

Svo SS takist þetta verk þarf félagið að eignast amk. 34% eða rúmelga 1/3 í MR, enda hefur félagið þannig náð sterkri samningsstöðu gagnvart meirihlutaeigandanum, Geri ehf. Nú hefur hinsvegar fréttst að Geri ehf. hafi hækkað tilboð sitt í gengið 1,3 til þeirra hluthafa sem eftir eru. Þeir sem þegar hafa selt Geri ehf. hlutabréf sín hafa því þegar orðið af tugum milljóna.

Athygli vekur að í bréfi frá lögmanni Geri ehf. er sértaklega getið um að innra virði félagsins hafi verið 100 milljónir við breytingu á MR í hlutafélag eða 0,62 krónur fyrir hverja krónu nafnvirðis. Tilboð upp á 1,0 hljómar því rausnarlegt, en nú hafa tilboðin s.s. hækkað um 30% á örfáum dögum og verður spennandi að fylgjast með hvernig framvinda málsins verður.

Byggt á frétt á www.naut.is