Á fyrsta ársfjórðungi nam tekjuafgangur hins opinbera, ríki og sveitafélaga 16,2 milljörðum króna sem er heldur lakari afkoma en á 1. ársfjórðungi 2007 er hann mældist 21,5 milljarðar króna.

Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuafgangurinn 1,2% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 10,2%.

Þetta kemur fram í nýjum Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2008 sem birt er á vef Hagstofu í dag.

Þar kemur fram að þessi hagstæða afkoma skýrist fyrst og fremst af góðri afkomu ríkissjóðs sem mældist 13,5 milljarðar króna, en afkoma sveitarfélaganna var einnig viðunandi eða 1,3 milljarðar króna samkvæmt áætlun.   Tekjur hins opinbera hafa vaxið um 3,2% að meðaltali milli ársfjórðunga frá fyrsta ársfjórðungi 2004 á sama tíma og vöxtur útgjalda hefur verið um 2,4% að meðaltali.Til samanburðar hefur neysluverð hækkað um 1,4% að meðaltali milli ársfjórðunga á þessum tíma.