Tekjuafgangur hins opinbera nam 22,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2007, samanborið við 16,6 milljarða króna á sama tímabili í fyrra, að því er kemur fram í Hagtíðindum Hagstofunnar.

Sem hlutfall af landsframleiðslu mældist tekjuafkoman 1,7% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 15,1%. Þessi hagstæða afkoma skýrist fyrst og fremst af góðri tekjuafkomu ríkissjóðs en tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig viðunandi og mældist 9,4% af tekjum sveitarfélaganna á þessum ársfjórðungi samkvæmt áætlun, segir Hagstofan.