Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 2,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. Það er 4,3 milljörðum krónum betri afkoma en á sama tíma í fyrra þegar afkoman var neikvæð um 6,7 milljarða. Tekjuhallinn nam 0,5% af landsframleiðslu á ársfjórðungnum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Á fyrstu níu mánuðum ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 18,1 milljarða króna eða 1,4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 29,2 milljarða króna á sama tíma í fyrra eða sem nemur 2,3% af landsframleiðslu.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.933 milljörðum króna í lok 3. ársfjórðungs 2013 sem samsvarar 108,5% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 878 milljarða króna í lok ársfjórðungsins, en það samsvarar 49,3% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs dróst saman um 55 milljarða króna milli 3. ársfjórðungs í fyrra og á þessu ári.