Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 26 milljarða króna, eða sem nemur 6,6% af af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 15,8% af tekjum þess. Þetta kemur fram í Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagreikningar um fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2010. Hagstofan birtir í dag.

Á sama tíma 2009 var tekjuafkoman neikvæð um tæplega 38 milljarða króna eða 9,8% af landsframleiðslu. Fyrstu níu mánuði 2010 reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 76 milljarða króna eða 6,7% af landsframleiðslu þessa tímabils, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um ríflega 106 milljarða króna á sama tíma 2009 eða 9,6% af landsframleiðslu.

„Tekjur hins opinbera námu rúmlega 484 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við um 452 milljarða króna árið áður og er hækkunin milli ára um 33 milljarðar króna eða 7,2%. Sem hlutfall af landsframleiðslu tímabilsins námu tekjurnar 42,4%. Mest er hækkunin í sköttum á vöru og þjónustu og tryggingagjöldum sem skiluðu rúmlega 34 milljörðum króna meiri tekjum á tímabilinu en 2009. Aðrar tekjur, aðallega vaxtatekjur og sala á vöru og þjónustu, lækkuðu hins vegar um ríflega 9 milljarða króna.

Útgjöld hins opinbera reyndust ríflega 561 milljarður króna á sama tíma eða sem svarar til 49,2% af landsframleiðslu tímabilsins og hækkuðu um 0,7% milli ára. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun sem áætluð eru um 169 milljarðar króna á tímabilinu, kaup á vöru og þjónustu 136 milljarðar króna og félagslegar tilfærslur til heimila 87 milljarðar króna. Þá er talið að vaxtagjöld hins opinbera verði 84 milljarðar króna fyrstu 9 mánuði ársins (og hækki um 29%) og opinber fjárfesting 29 milljarðar króna (og lækki um 31%). Aðrir útgjaldaliðir hafa staðið í stað eða lækkað í krónum talið.

Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 568 milljarð króna í lok 3. ársfjórðungs 2010 samanborið við um 441 milljarða króna neikvæða eign á sama ársfjórðungi 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.676 milljörðum króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem nam 108,8% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 1.419 milljörðum króna á 3. ársfjórðungi 2009 eða sem svarar 94,5% af landsframleiðslu.“