Tekjuafkoma hins opinbera á þriðja ársfjórðungi var jákvæð um 300 milljónir króna, eða 0,1% af landsframleiðslu ársfjórðungsins. Heildartekjur hins opinbera jukust um 4,9% milli þriðja ársfjórðungs 2013 og 2014 og á móti jukust heildarútgjöld um 5,0%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins opinbera jákvæð um 15,5 milljarða króna og nam tekjuafgangurinn 1,1% af landsframleiðslu tímabilsins. Á tímabilinu jukust tekjur um 9,7% en útgjöld um 4,2%. Á sama tímabili á síðasta ári var hins vegar tekjuhalli upp á 16,8 milljarða króna. Viðsnúningurinn milli ára skýrist einkum af 19,6 milljarða arðgreiðslu Landsbankans til ríkissjóðs.