Áætluð tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 9,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var afkoman jákvæð um 8,4 milljarða króna.

Heildartekjur hins opinbera jukust um 5,3% milli fyrsta ársfjórðungs í fyrra og í ár á sama tíma og heildargjöld jukust um 5,0%. Tekjuafgangurinn nam 1,5% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 3,5% af tekjum hins opinbera.