Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu um niðurfærslu verðtryggðra fasteigna , aðgerð sem er betur þekkt undir nafninu„Leiðréttingin.“ Þar kemur meðal annars fram:

„ [..] hefur lang stærstur hluti lækkunar höfuðstóls verið úthlutað til þeirra sem eru í efri hluta tekjudreifingar landsmanna. Tekjulægri helmingur framteljenda fékk tæp 14% af heildarupphæðinni á meðan tekjuhæsta tíundin fékk tæplega 30% upphæðarinnar.“

Í heildina voru 72,2 milljörðum króna ráðstafað í leiðréttingunni. Því fékk tekjuhæsta tíundin alls 22 milljarða. Þó er einnig tekið fram í skýrslunni að þeir tekjuhærri hafi að jafnaði hærri en skuldir þeirra tekjuminni.