Ragnar Jónasson, rithöfundur og lögfræðingur, er tekjuhæsti listamaður landsins. Tekjur hans námu að jafnaði rétt rúmum 2 milljónum á mánuði samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra. Ragnar er þó einnig lögfræðingur GAMMA og því koma tekjur hans ekki eingöngu frá ritstörfum hans. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur tæplega 4.000 Íslendinga.
Næstur í röðinni er leikarinn og grínistinn góðkunni Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., en tekjur hans námu að jafnaði rétt rúmlega 1,8 milljón króna á mánuði. Lista yfir tíu tekjuhæstu listamennina má finna hér að neðan.
Tíu tekjuhæstu listamennirnir árið 2017
- Ragnar Jónasson, rithöfundur og lögfræðingur 2.058
- Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi Jr.), leikari 1.813
- Óskar Magnússon, rithöfundur og bóndi 1.801
- Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón), rithöfundur 1.648
- Sigurður Sigurjónsson, leikari 1.573
- Baltasar Kormákur Baltasarsson, leikstjóri 1.483
- Pétur Jóhann Sigfússon, leikari 1.393
- Jón Kalmann Stefánsson, rithöfundur 1.361
- Hilmir Snær Guðnason, leikari 1.324
- Huldar Freyr Arnarson, kvikmyndagerðarmaður 1.316
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2017 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
|
|