Ríkisreikningur fyrir árið 2012 liggur nú fyrir og er ljóst að markmið endurskoðaðra áætlana gengu ekki eftir. Helstu niðurstöður reikningsins eru að tekjujöfnuðurinn varð neikvæður um 36 milljarða króna en endurskoðaðar áætlanir gerðu ráð fyrir að hann yrði neikvæður um 26 milljarða. Raunútkoman varð því 10 milljörðum króna lakari en fyrirséð var við afgreiðslu fjáraukalaga í desember síðastliðinn. Tekjuhallinn svarar til 7% af heildartekjum ríkissjóðs á árinu eða 2% af landsframleiðslunni. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu.

Frumjöfnuður ársins 2012 var jákvæður um 18 milljarða króna en gert var ráð fyrir að hann yrði jákvæður um 30 milljarða króna. Mestu munar um niðurfærslu á bókfærðum eignarhluta ríkissjóðs í Íbúðalánasjóði um 7 milljarða króna.

Tekjur voru 3,4 milljörðum króna lægri en gert var ráð fyrir og gjöldin 6,6 milljörðum króna hærri. Þrátt fyrir lakari tekjuafkomu en að var stefnt þá var hún mun hagstæðari en árið 2011 þegar tekjuhallinn var 89 milljarðar króna. Hins vegar var ríkissjóður með lánsfjárþörf sem nam 3,6% af landsframleiðslu á árinu 2012 samanborið við 3,5% lánsfjárafgang á árinu 2011.