Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir tímabilið janúar til október 2015 liggur nú fyrir.

Tekjujöfnuður ríkissjóðs var lítillega jákvæður en er betri en gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar tekjur námu 532 milljörðum króna og jukust um tæpa 32 milljarða milli ára, eða 6,4%.

Á móti jukust greidd gjöld um 39,5 milljarða króna. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um tæpa 20 milljarða samanborið við jákvætt handbært fé upp á tæpa 18 milljarða króna 2014.

Þessi viðsnúningur milli ára skýrist að stórum hluta með því að leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána sem gjaldfærð var í lok ársins 2014 kom til greiðslu í byrjun árs 2015.

Skattar á tekjur og hagnað jukust um 14,5% á milli ára og námu samtals 184 ma.kr.

Eignarskattar drógust talsvert saman frá fyrra ári eða um 44,7% og námu 6,6 ma.kr. á tímabilinu sem er 1,6 ma.kr. yfir áætlun. Samdrátturinn á milli ára skýrist af brottfalli auðlegðarskatts frá og með síðustu áramótum.