Tekjujöfnuður hins opinbera var neikvæður um 8,3 milljarða á fyrri helmingi ársins eða 0,9% af landsframleiðslu ársins. Sem hlutfall af tekjum varð tekjujöfnuður sveitarfélaganna talsvert lakari en ríkissjóðs.

Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar sem birtir nú öðru sinni samandregið talnaefni yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á rekstrargrunni eftir ársfjórðungum. Að þessu sinni nær talnaefnið yfir 1. og 2. ársfjórðung 2004. Sambærilegt efni verður framvegis birt ársfjórðungslega í lok næsta ársfjórðungs eftir að viðkomandi fjórðungi lýkur. Talnaefni þetta er meðal annars unnið vegna þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslensk stjórnvöld hafa tekið á sig í tengslum við EES-samninginn, en það mun þó enn frekar koma innlendum stjórnvöldum að gagni við mat á hagþróun innan ársins. Þá mun þetta nýja efni nýtast Hagstofunni við gerð ársfjórðungslegra þjóðhagsreikninga.

Efnið er tvískipt. Annars vegar er efni frá Fjársýslu ríkisins um tekjur og gjöld ríkissjóðs á 2. fjórðungi ársins og hins vegar er áætlað heildaryfirlit yfir tekjur og gjöld allra sveitarfélaga í landinu á sama tíma. Tölurnar frá sveitarfélögunum byggja á úrtaki 7 sveitarfélaga með 50% íbúafjöldans og hefur það úrtak verið fært upp til heildar. Enn sem komið er hefur ekki reynst unnt að birta mikla sundurliðun á efninu og takmarkast birtingin við rekstrartekjur, rekstrargjöld og tekjujöfnuð auk þess sem fjárfesting er sýnd sérstaklega. Áfram verður unnið að því í samvinnu við Fjársýsluna og sveitarfélögin að koma þessari skýrslusöfnun í fastan farveg.

Á 2. ársfjórðungi 2004 reyndust heildartekjur ríkissjóðs vera rúmir 67 milljarðar króna og tekjujöfnuður neikvæður um 4,1 milljarð króna. Tekjur sveitarfélaganna voru rúmir 20 milljarðar og tekjujöfnuður neikvæður um 1,2 milljarða. Tekjujöfnuður hins opinbera í heild varð því neikvæður um 5,3 milljarða króna eða 6,1% af tekjum þeirra. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársins varð hallinn 0,6% hjá hinu opinbera í heild.