Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, birti afkomu sína fyrir fjórða ársfjórðung og árið 2014 í Kauphöllinni í New York í gær.

Tekjur fyrir árið 2014 jukust um 48% í 12,8 milljarða Bandaríkjadala, samanborið 8,7 milljarða dala fyrir árið 2013, ef tekið er tillit til óvenjulegra liða (e. non-GAAP). Sé ekki tekið tillit til óvenjulegra liða jukust tekjur félagsins (e. GAAP) um 51% í 13,1 milljarð dala, samanborið við 8,7 milljarða fyrir árið 2013.

Hagnaður á hlut (e. diluted earnings per share) jókst um 47% í 13,98 dali á hlut samanborið við 9,50 dali á hlut árið 2013, ef tekið er tillit til óvenjulegra liða (e. non-GAAP).

Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (e. adjusted EBITDA) jókst um 99% í 4,5 milljarða dala, samanborið við 2,2 milljarða dala árið 2013. Handbært fé frá rekstri fyrir árið 2014 nam 2,2 milljörðum dala.

Ef ekki er tekið tillit til óvenjulegra liða (e. GAAP) nam tap á hlut 7,42 dölum á árinu, samanborið við 5,27 dala tap á hlut á árinu 2013, sem útskýrist aðallega af hærri afskriftum og kostnaði vegna fyrirtækjakaupa s.s. virðisrýrnun og lögfræðikostnaði.

Aukinn kostnaður vegna fyrirtækjakaupa

Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2014 jukust um 44% í 4,01 milljarða dala, samanborið við 2,78 milljarða dala á fjórða ársfjórðungi 2013 og hagnaður á hlut (e. diluted earnings per share) jókst um 23% í 3,91 dali á fjórða ársfjórðungi 2014, samanborið við 3,17 dali á hlut á sama tímabili í fyrra, ef tekið er tillit til óvenjulegra liða (e. non-GAAP).

Sé ekki tekið tillit til óvenjulegra liða (e. GAAP) jukust tekjur um 46% í 4,06 milljarða á fjórða ársfjórðungi 2014 samanborið við 2,78 milljarða á fjórða ársfjórðungi 2013 og tap á hlut var 2,76 dalir samanborið við 0,86 dali á sama tímabili í fyrra. Afkoma félagsins þegar tekið er tillit til óvenjulegra liða (e. GAAP) varð fyrir áhrifum af afskriftum og kostnaði vegna fyrirtækjakaupa, s.s. virðisrýrnun og lögfræðikostnaði.

Hagnaður fyrir fjármagsliði, skatta og afskriftir (e. adjusted EBITDA) á fjórða ársfjórðungi 2014 jókst um 80% í 1,5 milljarða, samanborið við 817 milljónir á fjórða ársfjórðungi 2013. Handbært fé frá rekstri nam 812 milljónum dala á fjórða ársfjórðungi og handbært fé og markaðsverðbréf námu 251 milljón dala þann 31. desember 2014.

Félagið breytist í alhliða lyfjafyrirtæki

Actavis styrkti stöðu sína á sviði frumlyfja á árinu með kaupum á Forest Laboratories sem gengu í gegn 1. júlí 2014. Þá tilkynnti Actavis um kaup á bandaríska frumlyfjafyrirtækinu Allergan í nóvember 2014 sem fyrirhugað er að gangi í gegn á vormánuðum. Í kjölfar þessara fyrirtækjakaupa verður Actavis eitt af tíu stærstu lyfjafyrirtækjum heims, með starfsemi í 100 löndum, yfir 30.000 starfsmenn og áætlaða ársveltu sem nemur 23 milljörðum bandaríkjadala.

Þá hefur verið ákveðið að móðurfélag sameinaðs fyrirtækis Actavis og Allergan taki upp nafnið Allergan en sú ákvörðun er háð samþykki hluthafafundar. Actavis nafnið mun halda sér á sviði samheitalyfja á ákveðnum mörkuðum en nánari útfærsla á því er í skoðun.