Rekstrarhagnaður Advania Data Centers (ADC) nam 3,8 milljónum dollara á síðasta ári, eða 516 milljónir króna, samanborið við þriggja milljóna dollara hagnað árið 2018. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 10,3 milljónum dala eða um 20% af tekjum félagsins, samanborið við 23% EBITDA-hlutfall árið 2018.

Tekjur ADC jukust um 37,4% á árinu 2019, í kjölfar mikilla fjárfestinga við uppbyggingu félagsins. Heildarvelta nam 51,5 milljónum dollara, eða rúmum sjö milljörðum króna.

Erfiðara rekstrarumhverfi vegna hækkandi orkuverðs

Í fréttatilkynningu fyrirtækisins segir að rekstrarárið hafi einkennst af aukinni alþjóðlegri samkeppni, sem knúin var af lækkandi orkuverði á öllum helstu samkeppnismörkuðum. Aðstæður kölluðu því á talsverða hagræðingu í rekstri ADC, sem gripið var til í upphafi ársins.

„Rekstrarumhverfi gagnavera hérlendis hefur versnað þar sem orkuverð á Íslandi hefur heldur hækkað á undanförnum árum á meðan þróunin hefur verið öfug víða annarstaðar,“ er haft eftir Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni, forstjóra ADC.

„Þá njóta okkar keppinautar erlendis góðs af framþróun í gagnatengingum, en á Íslandi eru fáar og tiltölulega dýrar gagnatengingar sem nauðsynlegt er að bæta úr til að tryggja samkeppnisstöðu Íslands. Tíminn til að bregðast við þeirri þróun er núna, á meðan gagnaversiðnaðurinn er að vaxa og skjóta rótum á lykilstöðum til framtíðar en við erum nokkuð bjartsýn á að hagaðilar muni styðja við iðnaðinn á næstunni.“

Væntur árlegur vöxtur gagnaversiðnaðarins í Evrópu er um 15% næstu fimm árin, segir í tilkynningunni. Hann verður drifinn af aukinni þjónustu við fyrirtæki sem þurfa aðgang að miklu reikniafli og gervigreindarlausnum.

„Útlitið er ágætt, en ljóst að samdráttur í hagkerfum heimsins vegna COVID-19 mun hafa umtalsverð áhrif á afkomu þessa árs. Eftirspurn hefur dregist saman en einnig hefur framleiðsla og afhending á tölvubúnaði til uppsetningar hjá okkur verið takmörkuð og tafið verkefni,“ segir Eyjólfur.

„Okkar áætlanir munu hliðrast, en félagið mun standa af sér þetta tímabundna ástand og nýta tímann vel til að þróa vöru- og þjónustuframboð sitt. Félagið býr að því að vera með sterkan viðskiptamannagrunn og hafa skapað sér nafn á sínu sviði, auk þess sem spennandi verkefni eru í fullum gangi. Uppbygging nýs 70 milljón dollara gagnavers í Stokkhólmi í Svíþjóð er á áætlun og við hlökkum til að fylgja því úr hlaði.“