Tekjur af erlendum ferðamönnum á 3. ársfjórðungi námu tæplega 33 milljörðum króna og voru um fimmtungur af því sem þær voru á sama tímabili í fyrra þegar þær voru tæpir 169 milljarðar. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar .

„Tekjur af farþegaflutningum með flugi drógust saman um 91%, úr 49 milljörðum í 4,5 milljarða, á meðan tekjur af neyslu og ferðalögum lækkuðu um 76%, úr tæpum 120 milljörðum í 28 milljarða á sama tímabili. Síðustu 12 mánuði hafa tekjur af erlendum ferðamönnum dregist saman um 59%, úr 485 milljörðum í 197 milljarða króna, borið saman við sama tímabil árið áður,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Jafnframt segir að áætlaðar gistinætur á hótelum hafi verið 24.000 í nóvember síðastliðnum, sem sé 93% fækkun samanborið við nóvember í fyrra. Þar af sé áætlað að gistinætur greiddar af Íslendingum hafi verið 17.000 (-61%) og erlendar gistinætur hafi verið 7.000 (-98%). Brottfararfarþegar sem hafi farið í gegnum Keflavíkurflugvöll hafi verið rúmlega 5 þúsund í nóvember og fækkað um 97% frá sama mánuði í fyrra er þeir voru tæplega 177 þúsund. Heildarfjöldi flughreyfinga hafi einnig dregist saman um 62%, úr 6.812 í 2.572, séu sömu mánuðir bornir saman.