Tekjur af erlendum ferðamönnum voru stærsta útflutningsafurð Íslendinga á síðasa ári. Þetta sést í nýjum gögnum um útflutning á vörum og þjónustu hjá Hagstofunni, eins og bent er á í nýjasta fréttabréfi Ferðamálastofu.

Alls námu tekjur af erlendum ferðamönnum tæplega 275 milljörðum króna á árinu 2013, sem samsvarar 26,8% af heildarverðmæti útflutnings vöru og þjónustu. Útflutningur sjávarafurða nam 25,5% og áls og álafurða 21,0% og voru það þrír stærstu liðirnir.

Þetta er í fyrsta sinn sem tekjur af erlendum ferðamönnum eru stærsta útflutningsafurð landsins. Hlutfallið var tæp 19% árið 2010 og hefur því vaxið hratt á síðustu þremur árum.