Afkoma Vaxa Tehnologies Iceland ehf., sem áður hét Algaennovation, var neikvæð um 3,5 milljónir króna á síðasta ári.

Félagið ræktar smáþörunga í verksmiðju við Hellisheiðarvirkjun en sala síðasta árs nam 277 milljónum og féll hún um tæp tíu prósent milli ára.

Fastafjármunir voru metnir á 654 milljónir í ársbyrjun en veltufjármunir voru 584 milljónir. Skuldir nema 1.244 milljónum en þar af eru 920 milljónir við breskt móðurfélag. Kristinn Hafliðason er framkvæmdastjóri Vaxa.