Rekstur upplýsingatæknifyrirtækisins ANZA hf. gekk vel á síðasta ári að því er kemur fram í tilkynningu, en tekjur félagsins meira en tvöfölduðust milli ára. Rekstrartekjur námu alls 1.870 milljónum króna á árinu 2006 samanborið við 794 milljónir árið áður og nemur tekjuaukningin 135%.

Þarna vega þungt áhrif frá Sirius IT, sem kemur inn í reksturinn í lok ársins. Rekstrarhagnaður án afskrifta og fjármagnskostnaðar, EBITDA, nam alls 146 milljónum króna og hagnaður fyrir skatta 55 milljónum króna.

Í nóvember síðastliðnum keypti ANZA hf. hluta af starfsemi norræna upplýsingatæknifyrirtækisins TietoEnator í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Í framhaldi af því var stofnað dótturfyrirtækið Sirius IT, nýtt norrænt upplýsingatæknifyrirtæki sem yfirtók þessa starfsemi. Hjá fyrirtækinu starfa um 420 manns og nam veltan á árinu 2006 um 5,4 milljörðum króna. Starfsemi félagsins byggir á fjölbreyttu þjónustu- og lausnaframboði fyrir bæði opinbera aðila, sem og stærri einkafyrirtæki. Rekstur Sirius IT hefur farið vel af stað og fyrirtækið áunnið sér mikilvægt traust á markaðnum. Starfsemi ANZA hf. og Sirius IT er nú í fjórum löndum, með mikið lausnaframboð og þjónustur, sem hægt er að bjóða viðskiptavinum milli landa.

ANZA hf. er dótturfyrirtæki Símans hf. Fyrirtækið sérhæfir sig í rekstri og uppbyggingu tölvukerfa, auk ráðgjafar og fjölbreyttar þjónustu sem er sniðin að þörfum viðskiptavina. Hjá fyrirtækinu starfa um 500 manns, þar af 85 á Íslandi og 420 í Skandinavíu. Framkvæmdastjóri ANZA hf. er Hreinn Jakobsson.