Smásölufyrirtækið Costco opnaði verslun sína á Íslandi síðastliðinn þriðjudag. Nú rekur keðjan 732 vöruhús um heim allan. Heildartekjur Costco samstæðunnar sem er næst stærsta smásölufyrirtæki í heimi nam 120 milljörðum dollara í fyrra sem er fimmfalt meira en landsframleiðsla Íslands í fyrra. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans .

Einnig er í  farið yfir ótrúlegt gengi hlutabréfaverð félagsins. Þar kemur fram að einn hlutur í Costco á Nasdaq Kauphöllinni kosti nú 174,7 dollara og hefur hlutabréfaverð í félaginu hækkað um 14,7% á ári að meðaltali síðastliðinn 20 ár.

Grafið fengið frá hagfræðideild Landsbankans:

Hlutabréfaverð - fengið frá hagfræðideild Landsbankans
Hlutabréfaverð - fengið frá hagfræðideild Landsbankans