Samanlagðar tekjur fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga, ásamt tekjum af kostun, námu ríflega 9,8 milljörðum króna á síðasta ári.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að auglýsingatekjur miðlanna hafi dregist saman um fimm af hundraði frá fyrra ári. Reiknað á meðalverðlagi ársins 2008 rýrnuðu auglýsingatekjurnar um 15 af hundraði.

Af þeim flokkum fjölmiðla sem tölur um auglýsingatekjur ná til, féll stærstur hluti tekna af auglýsingum á síðasta ári til fréttablaða (dagblaða og vikublaða), eða 58 af hundraði. Ríflega fjórðungur af auglýsingatekjum fjölmiðla rann til sjónvarps. Því næst kom hljóðvarp með 14 af hundraði. Restina ráku kvikmyndahús, mynddiskar og myndbönd með samanlagt laust innan við tvo af hundraði teknanna. Þá kemur fram að skipting auglýsingatekna milli miðla hefur haldist að mestu óbreytt um árabil.

Tölur um auglýsingatekjur fjölmiðla eru fengnar úr árlegri gagnasöfnun Hagstofunnar meðal fjölmiðlafyrirtækja.

Ekki kemur fram á vef Hagstofunnar hvernig nákvæmlega mælingin er framkvæmd. Þannig kemur ekki fram hvort tekjurnar séu reiknaðar af verðskrá fjölmiðla eða hvort tekið sé tillit til afslátta eða annarra samninga sem fjölmiðlar kunna að hafa veitt auglýsendum.