Rekstrartekjur Hafnarfjarðarbæjar á síðasta ári reyndust 8.111 milljónir króna samanborið við 7.213 milljón króna áætlun og munar þar 897 milljónum króna. Þar ber helst að telja 696 milljón króna hagnað af eignasölu og sölu byggingarreita auk þess sem skatttekjur reyndust 73 milljónum krónum meiri en áætlað var. Rekstrargjöld reyndust 7.384 milljónir króna samanborið við 7.007 milljón króna áætlun og véku því 377 milljónir króna frá áætlun. Þar vegur þyngst 131 milljón króna hækkun lífeyrisskuldbindinga umfram áætlanir.
Einnig má nefna 68 milljón króna hærri framlög til félagsþjónustu, æskulýðs-og íþróttamála, 64 milljón króna hærri framlög til Eignasjóðs og Þjónustumiðstöðvar og 43 m.kr. hærri útgjöld Hafnarsjóðs. Þá gengu hagræðingaraðgerðir seinna fram en ráðgert var og munar þar 64 milljónum króna. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 512 milljónir króna en gert var ráð fyrir því að þeir yrðu neikvæðir um 328 milljónir króna og munar þar 840 milljónum króna. Breytingin er aðallega tilkomin vegna gengishagnaðar af erlendum lánum bæjarfélagsins vegna styrkingar íslensku krónunnar á árinu segir í tilkynningu Hafnarfjarðarbæjar.